Boltafélagið Geirfinnur
Helstu styrktaraðilar:)
15.04.2006 19:01:53 / geifinnur

Páskabolti páskabolti

já dömur mínar og meðlimir í Bltafélaginu Geirfinni það er bolti upp í höll kl 13 hundruð á morgun, páskasunnudag 16. apríl. Látið það berast og mætum nú með góða skapið og cheerios bolina með okkur:) Kannski við plönum svo hitting um kvöldið ef stemmari er fyrir því:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 10:23:46 / geifinnur

Páskadjamm??

Heil og sæl. Ákveðið hefur verið að reyna að skella í smá hitting hjá Boltafélaginu Geirfinni um páskana:) Hvað segja meðlimir um það??? Tilaga um að hafa bolta í höllinni og hittingu á eftir. (kemur í ljós hvort við borðum saman eða hvað verður gert, en áætlað er að reyna að hittast í heimahúsi)  Þeir sem hafa áhuga endilega hafa samband annað hvort við Unni Hafliða eða commenta hérna fyrir neðan. Það eru bara tveir dagar sem koma til greina og eru það föstudagurinn 14 (semsagt föstudaginn langa) eða á laugardeginum 15. Það væri þá gott ef þið munduð láta vita hvorn dagurinn hentar betur.. semsagt hér í commentinu eða heyra í Unni.. :) Reynum nú að vera virkar, rífum upp gömlu góðu cheeriosbolina og sjáumst vonandi sem flestar um páskana:) En eins og við vitum hentar þessir dagar ekki öllum en því miður geta aldrei allir verið með.. En því fleiri því betra..


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 19:39:46 / geifinnur

Á ekki að reyna að halda þessari síðu gangandi!!!

Þá held ég að það verði að vera fleiri hræður sem skrifa inn á þessa síðu!!! og ef ykkur vantar lykilorðið inn á síðustjórnun þá getið þið fengið það hjá mér. Koma svo stelpur verum lifandi og skrifum bara eitthvað skemmtilegt svona einstöku sinnum:) jafnvel þótt það sé bara eitthvað bull

Kveðja Rannveig


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2006 04:00:53 / geifinnur

Jólin eru búin

Þar sem jólin eru búin svona hjá flestum íslendingum þá gat ég ekki horft upp á síðuna lengur í jólabúningnum og gerði mér það bessaleifi að breyta þessu, man samt ekki hvernig upprunalegi liturinn var þannig að það verður bara einhver sem veit það að breyta þessu aftur.

En allavega það er frekar sorglegt hvað við erum lélegar að uppfæra þessa síðu okkar og halda sambandi, var t.d. einhver hittingur um jólin?? Ég var allavega ekki látin vita af því ef svo var.

En allavega farið endilega að láta eitthvað í ykkur heyra. Ég hef náttúrulega ekkert um málin að segja þar sem ég er ekki stödd heima á víkinni.

bless kex

Fréttaritari á Akureyri


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 10:19:21 / geifinnur

Desember kominn í hús:)

Nú stittist í jól og jólasveina:P:P:P


» 100 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 14:03:34 / geifinnur

Góðar viðtökur um að hittast um jólin:)

Vegna góðra viðbragða við jólabolta þá væri nú kannski gott að einhver meðlimurinn myndi ræða þessi mál við yfirvöldin í íþróttarhöllinni og fá lausan tíma! Hver er til í það???

p.s. áfram Geirfinnur8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.11.2005 09:05:00 / geifinnur

hæhó

Nú stittist í jólin og því vorum við nokkrar bg-gellur að spá í að hittast um eða fyrir jól eða þ.e.a.s. þegar allir meðlimir sem hafa áhuga eru komnir á víkina fögru:):):)

Hvernig sándar það???


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.08.2005 18:17:35 / geifinnur

Æfingar!!!

Jæja þá er það ákveðið að næstkomandi miðvikudagur, þ.e. 24. ágúst verður síðasta æfing sumarsins haldin!!! Það hefur nefnilega verið furðu fátt á síðustu æfingum og t.d. mættu aðeins 2 meðlimir á síðustu æfingu humm humm....:$ Því hvet ég alla sem vetlinga geta valdið að mæta á síðustu æfingu sumarsins:)

Kveðja Rannveig


» 109 hafa sagt sína skoðun

22.06.2005 21:36:36 / geifinnur

Grillveisla á morgun, fimmtudag 23. júní

Mæting heima hjá Unni Hafliða á slaginu 20:00:D Hver og einn kemur með sitt kjöt og sinn drykk og má hann alveg endilega vera áfengur8) hehehe sjáumst hressar á morgun!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2005 20:33:50 / geifinnur

Miðvikudagur

jæja þá er komið að enn einni skammarræðunni. Það var nefnilega ætlunin að hafa æfingu í kvöld en vegna lélegrar mætingar var hætt við allt saman. Við mættum sem sagt bara 5 en ég veit að Unnur og Rakel Hafliðadætur voru önnum kafnar inn á Eyri þannig að þeim er nú fyrirgefið og Vala er meidd en fyrir ykkur sem ekki mættuð þá hef ég bara eitt að segja og það er SKAMM SKAMM!!!!! Grunur liggur nefnilega á að sumir meðlimir hafi verið fyrir framan sjónvarpstækin að horfa á meistaradeildina og er það náttúrulega fyrir neðan allar hellur að haga sér svona stelpur. En allavega þá er æfing næsta miðvikudag stundvíslega klukkan hálf 8

Kveðja Rannveig


» 107 hafa sagt sína skoðun

18.05.2005 12:41:35 / geifinnur

ÆFINGAR ÆFINGAR ÆFINGAR=)

Þá er það ákveðið:D

Núna eiga allir að taka skóna og pússa, búið er að ákveða æfingar;)

Miðvikudaginn 25. mai byrjum við formlega. Allar að mæta stundvíslega half 8 (20:30) uppá Flatarholt:!:
Sama og í fyrra:)

Þær sem ætla að vera með (sem eru staðsettar á H.vík) eiga að mæta;)

Þær sem mæta fá að vita hvað um var rætt í gær á æfingu, (þri 17. mai.)

heyhey


» 95 hafa sagt sína skoðun

16.05.2005 21:58:08 / geifinnur

Æfing þriðjudaginn 17. maí

Sælt veri fólkið. Nú er það áhveðið það er æfing á morgun kl 8 upp á tjaldstæði. Allir að mæta:)

Kveðja Rannsa


» 129 hafa sagt sína skoðun

15.05.2005 14:51:05 / geifinnur

Æfingar æfingar!!!

Sælt veri fólkið. Hvað segja meðlimir um að halda æfingu næstkomandi þriðjudag kl 8 ef veður leyfir??? Við getum örugglega spilað á sama velli og síðast liðið sumar. Boltamálin eru að ég held í höndum Unnar Friggjar:) eða er það ekki??? En ef einhver meðlimur getur reddað bolta þá má hin sami endilega mæta með hann. Annars bið ég ykkur bara vel að lifa og sjáumst vonandi fljótega á æfingu:)

Kveðja Rannsa pannsa


» 103 hafa sagt sína skoðun

04.05.2005 17:18:10 / geifinnur

Framkvæmdarstjórinn væntanlegur til landsins í dag

Já nú er loksins komið að því!! Sigurbjörg eða Sigríður eins og sumir vilja kalla hana er væntanleg til landsins í dag. En það er því miður ekki fyrr en á morgun sem hún flygur heim í heiðardalinn:) Hlökkum við auðvita öll til þess að bera drottninguna augum enda langt síðan við heyrðum eða sáum hana síðast. Svo verðum við bara að fara að huga af næstu æfingu sem verður örugglega ekki fyrr en það hættir að snjóa svona:!:


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2005 19:51:21 / geifinnur

Lettland bidur ad heysla

Hae elskurnar!! nuna er eg stodd i Latvia og vildi bara adeins lata ykkur vita af mer. Thetta er ekkert eins skritid land og eg helt en hotelid er mjog serstakt. Thad vantar t.d. seturnar a annadhvert klosett. Eg tharf samt ad drifa mig en thid getid lesid meira a sidunni minni, thad er lika aldrei ad vita ad eg skrifi herna aftur adur en eg fer heim.

Ata i bili

Frettaritari i Riga


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5